Miðflokkurinn orðinn stærri en Framsókn

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup þá er Miðflokkurinn orðinn stærri en Framsóknarflokkurinn. Miðflokkurinn mælist með 8,7 prósent fylgi meðan fylgi Framsóknar minnkar dag frá degi, líkt og á við um alla þrjá flokkana sem skipa núverandi ríkisstjórn, og er nú komið í 7,5 prósent. Þó að munurinn á fylgi flokkanna sé vafalaust innan skekkjumarka þá eru líklega margir Framsóknarmenn farnir að ókyrrast við að sjá klofningsframboð fara fram úr flokknum.

Fyrir utan þetta þá er lítið nýtt að frétt í könnun Gallup, nánast allir aðrir flokkar standa í stað frá síðustu könnun. Samfylkingin er stærst og mælist nú með 28,5 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram með 21 prósent. Píratar mælast með ríflega 10 prósent, Viðreisn með ríflega 7 prósent og Flokkur fólksins með 6,3 prósent. VG er í hættu að detta út af þingi og mælist með 5,9 prósent. Sósíalistaflokkurinn mælist með 4,4 prósent.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí