„Enn kemur fram að ekkert er hæft í fullyrðingum Miðflokksins um stjórnleysi við landamærin (hér má sjá frétt RÚV).
Ég setti tölurnar frá ríkislögreglustjóra í graf. Þar sést að umsóknir eru miklu færri en áður, og ekki bara vegna þess að stjórnvöld hættu að bjóða fólki frá Venesúela sjálfkrafa vernd (byggt á einhverju samkomulagi Sjálfstæðisflokksins við fyrri Trumpstjórnina, sem liður í stjórnarskiptum í Venesúela).
Sem fyrr er megnið af flóttafólkinu frá Úkraínu, 2/3 hlutar bæði í ár og fyrra. Þau sem vilja fækka hælisleitendum hljóta þá að leggja til að við hættum að bjóða Úkraínumönnum sjálfkrafa vernd.
Flóttafólki annars staðar frá, fólk sem ekki er sérstaklega boðið hingað af stjórnvöldum, hefur fækkað um helming frá því sem áður var.“
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.