Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Fíklar, Úkraína, Grindavík, borgir og skólinn okkararrow_forward
Við ræðum við fíkla og aðstandendur þeirra um undirheimanna og lítið aðgengi fíkla að heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þröstur Ólafsson, Hilma Dögg Hávarðardóttir og Halla Björg Albertsdóttir segja okkur frá sinni reynslu. Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um Úkraínu, minnkandi stuðning og verri stöðu á vígvellinum. Feðgarnir Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Einar Hannes Harðarson formaður Sjómannafélags Grindavíkur koma til okkar og fara yfir stöðu fólks á flótta undan náttúruöflunum. Haraldur Sigurðsson skipulagsfræðingur segir okkur frá hugmyndum fólks um hina góðu borg. Og þá illu. Í lokin kemur Björn Pétursson fyrrum skólastjóri Melaskóla að rauða borðinu og segir okkur frá því hvernig hann myndi vilja byggja upp skólakerfið.
Skólinn, pólitík í USA, samfélagið, Samfylkingin og loftslagiðarrow_forward
Við höldum áfram að greina skólakerfið. Ragnar Þór Pétursson kennari í Norðlingaskóla kemur og greinir vanda kerfisins, orsök og leiðir út. Við ræðum við Guðmund Hálfdanarson sagnfræðing um stjórnmál í Bandaríkjunum og hvaða áhrif þau hafa á stríð og frið í heiminum. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur var að senda frá sér ævintýri um ójöfnuð og segir okkar hvernig samfélagið virkar á hana. Það er komið að Samfylkingunni í viðtölum okkar við þingflokksformenn. Logi Einarsson segir okkur frá því fyrir hvað hún stendur og hvað hún vill. Í lokin kemur Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, og greinir stöðuna á Cop28.
Vikuskammtur: Vika 49arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna, Flosi Eiríksson trésmiður og formaður Breiðabliks, Margrét Hugrún Gústavsdóttir blaðamaður og mannfræðinemi og Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af svörtum skýrslum, harðnandi stríðum, upplausn, mótmælum og því að jólin eru í nánd.
Skólinn, Viðreisn og heiðinn siðurarrow_forward
Við höldum áfram umfjöllun um skólamál. Fyrst sláum við á þráðinn til Þorláks Axels Jónssonar aðjunkts við kennaradeild Háskólans á Akureyri og ræðum próf sem tæki gegn stéttaskiptingu. Síðan fáum við Jón Torfa Jónasson prófessor til að lýsa skólakerfinu og átökunum um það, en fáir hafa betri innsýn inn í þróun þess á liðnum áratugum. Það er komið að Viðreisn í viðtölum við þingflokksformenn. Hanna Katrín Friðriksson segir okkur frá Viðreisn, fyrir hvað hún stendur og hvað hún vill. Í lokin kemur Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði og ræðir um aðventuna og heiðinn sið, andlega stöðu okkar og samfélagsins.
Sárafátækt, skólar, sænska leiðin, næstum-Reykjvík, trú og spillingarrow_forward
Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu lýsa fyrir okkur kolsvartri skýrslu um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi. Þórdís Sigurðardóttir forstjóri Menntamálstofnunar bregst við niðurstöðum Pisa-könnunarinnar og Gunnlaugur Magnússon dósent í uppeldisfræði við Uppsalaháskóla segir okkur frá sænsku leiðinni í skólamálum, leið markaðs- og einkavæðingar. Hjónin Guðni Valberg arkitekt og Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur segja okkur frá Reykjavík sem ekki varð og Örn Bárður Jónsson prestur ræðir við okkur um spillingu í ljósi trúar og lífsgilda.
Pisa, Flokkur fólksins, kynþáttahyggja og Islamarrow_forward
Við fáum Magnús Þór Jónsson formann Kennarasambandsins til að skýra hvers vegna íslenskir nemendur standa sig illa og æ verr í samanburði við evrópska nemendur. Við fáum Guðmund Ingi Kristinsson þingflokksformann Flokks fólksins til að útskýra þann flokk, stefnu og markmið. Við fáum Kristínu Loftsdóttur mannfræðing til að segja okkur frá kynþáttahyggju nýlendutímans og hvernig hún tengist rasisma okkar tíma. Og við fáum Sverrir Agnarsson til að segja okkur frá Islam á aðventunni, innihaldi trúarinnar en líka átökum milli hins kristna heims og Islam.
Miðflokkurinn, himinn & haf, undirgefni og ástinarrow_forward
Við viljum fá þingflokksformenn í viðtal til okkar á aðventunni, sem er pólitísk tíð með átökum á Alþingi. Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, kemur fyrstur og segir okkur hvað sá flokkur fyrirstendur og hvað hann vill. Birna Sigrún Hallsdóttir umhverfisverkfræðingur heldur úti mögnuðum vef, Himin & haf, um loftlagsmál. Við kynnumst vefnum og fáum Birnu til að leggja mat á stöðuna og ráða í hvers vegna íslensk stjórnvöld standa sig svona illa. Við veltum fyrir okkur hvers vegna Íslendingar láta allt yfir sig ganga með Öldu Sigmundsdóttur rithöfundi, sem segir okkur undirgefin vegna aldalangrar kúgunar vinnufólks í vistarböndum. Í lokin kemur Sigurður Árni Þórðarson, fyrrum prestur, og segir okkur frá ástinni, trú og tilgangi lífsins.
Helgi-spjall: Ólafur Haukurarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Ólafur Haukur Símonarson frá sjálfum sér, fjölskyldu, samferðafólki og tímanum sem hann hefur lifað.
Vikuskammtur: Vika 48arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur, Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Aðstöðu félags fanga, Ingimar Karl Helgason grunnskólakennari og fyrrum fréttamaður og Lóa Björk Björnsdóttir uppistandari og útvarpskona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af vopnahlé, afnámi hættuástands, handtöku og alls kyns átökum.
Kvótinn, loftslagið, kvennabaráttan og maturinnarrow_forward
Við höldum áfram að ræða kvótann í tilefni af sjávarútvegsstefnu Svandísar Svavarsdóttur. Nú koma þingmennirnir Oddný Harðardóttir frá samfylkingu, Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn og Björn Leví Gunnarsson Pírati og segja sitt álit á tillögum Svandísar og hvernig þau myndu vilja hafa sjávarútvegsstefnuna. Í tilefni af COP28, loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna kemur Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor og segir okkur hver staðan er og hvað þarf að gera. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri og Hjördís Hjartardóttir félagsráðgjafi segja okkur frá Guðrúnu Jónsdóttur, stofnanda Stígamóta og fyrrum borgarfulltrúa, í tilefni þess að Ingibjörg skrifaði bók um Guðrúnu. Og í lokin höldum við áfram umræðu um matarræktun í borgarlandinu. Dóra Svavarsdóttir formaður Slow Food á Íslandi ræðir við okkur um matvælaframleiðslu, dreifingu og sölu.