Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Félagslegir töfrar, Kolkrabbinn og matur landnámsaldararrow_forward
Við byrjum á ferðalagi í leit að félagslegum töfrum með Viðari Halldórssyni, fáum hann til að lesa í nokkrar ljósmyndir og ráða í félagslegt heilbrigði okkar tíma. Þá kemur Örnólfur Árnason til okkar og segir okkur frá bókinni Á lóð kolkrabbans, sem fjallaði um þá sem áttu Íslandi fyrir þrjátíu árum og eiga að mestu enn. Og um vanhelgt samlífi viðskipta og stjórnmála. Í lokin förum við í ferð aftur á landnámsöld og fáum þá Kristbjörn Helgi Björnsson og Úlfar Finnbjörnsson til að segja okkur hvað var þá í matinn.
Fátækin, íslenskan, neyslan og sauðkindinarrow_forward
Elísabet Kjárr er föst á milli tveggja kerfa, féll af endurhæfingarlífeyri og kemst ekki á örorku, og er tekjulaus, fallin í gegnum möskvana á öryggisnetinu í samfélaginu. Hún segir okkur sína sögu. Það sama gerir Jakub Stachowiak, hommi sem flúði Pólland og yrkir og skrifar á íslensku. Daði Jónsson kvikmyndagerðarmaður kemur til okkar og segir okkur frá menningarsjokkinu sem hann varð fyrir þegar hann flutti heim til Íslands og enduruppgötvaði hvað við vinnum mikið, neytum mikið og sóum miklu. Og líklega gæti Ólafur Dýrmundsson tekið undir það, búvísindamaður og sauðfjárbóndi í Breiðholti. Hann ræðir um þörfina fyrir ræktun og búskap í borgarlandinu.
Skammtímaleiga, kvóti, sorp, launavinna og Venesúela á Flateyriarrow_forward
Við ræðum Airbnb og skammtímaleigu til ferðafólks: Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Sigrún Tryggvadóttir formaður Íbúasamtaka miðborgarinnar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna greina stöðuna og benda á lausnir. Hvað finnst Sigurjóni Þórðarsyni varaþingsmanns um nýja sjávarútvegsstefnu Svandísar Svavarsdóttur? Hvers vegna eru höfuðborgarbúa langt á eftir öðrum í flokkun sorps, langt á eftir fólki í öðrum löndum? Kjartan Valgarðsson segir okkur hvers vegna. Við ræðum við Ævar Kjartansson um sósíalisma ’68-kynslóðarinnar og þá sérstaklega um áþján launavinnunnar og þörf á lýðræðisvæðingu atvinnulífsins. Í lokin kemur Helen Cova og segir okkur frá þremur bókum sem hún tengist á þessu ári,. hvernig það er að yrkja og semja á íslensku fyrir konu á Flateyri sem ættuð er frá Venesúela.
Helgi-spjall: Þorvaldur Friðrikssonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Þorvaldur Friðriksson okkur frá fólkinu sínu, æskunni og áhugamálunum sem segja má að séu öll á jaðrinum, skrímsl, lækningajurtir og keltnesk áhrif á íslenska menningu. Hvers vegna er Þorvaldur svona skrítin og sérstök áhugamál? Eða eru það kannski frekar við hin sem eru skrítin og takmörkuð?
Vikuskammtur: Vika 47arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Bollason listamaður, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Þóra Karitas Árnadóttir leikstjóri og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Grindavík, Gaza og öðrum hættusvæðum.
Furðulegur forseti, nýir þættir á Samstöðinniarrow_forward
Við fáum Helga Hrafn Guðmundsson til að segja okkur frá Javier Milei, nýkjörnum forseta Argentínu, sem sannarlega bindur bagga sína ekki sömu hnútum og stjórnmálafólk almennt. Síðan ræðum við nýja þætti á samstöðinni. Miðjuna á miðvikudegi og Syni Egils sem Sigurjón Magnús Egilsson sér um, Mótmæli í morgunmat sem Oddný Eir Ævarsdóttir heldur utan um, Grimma & Snar sem frænkurnar Ingibjörg Magnadóttir og Kara Guðmundsdóttir eru að byrja með, Maður lifandi sem feðgarnir Björn Þorláksson og Starkaður Björnsson halda utan um og Heimsmyndir sem Kristinn Theódórsson verður með.
Hommar, Rómafólk og stjörnuspekiarrow_forward
Böðvar Bragason hefur skrifað bók um stræakana sem komu úr skugganum, frelsisbaráttu gaysamfélagsins á Íslandi. Við fáum hann til að segja okkur þessa sögu. Marco Solimene, mannfræðingur og lektor við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands segir okkur frá afar áhugaverðri Rannís-rannsókn á sögu og etnógrafíu Rómafólks á Íslandi. Og í lokin er óskalag frá dyggum hlustanda, viðtal við Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking um breytingarnir sem verða þegar Plútó fer inn í vatnsbera.
Grænþvottur, hraðtíska og villta vinstriðarrow_forward
Oddný Eir ræðir við Finn Ricart Andrason forseta Ungra umhverfissinna um Tunglið sem er tilraun Ungra umhverfissinna til að sannreyna loforð stjórnarflokka um umhverfismálin, hann ræðir líka um grænþvottinn og heildrænu nálgunina. Sigrún Sandra Ólafsdóttir sem nýverið lauk við rannsókn á neikvæðum áhrifum textílframleiðslu og fataiðnaðar ræðir einnig um grænþvottinn og svörtu tilboðsdagana, skuggahliðar fataiðnaðarins og óhóflega tískuneyslu Íslendinga. Gunnar Smári heldur síðan áfram að rifja upp villta vinstrið og fær Pétur Tyrfingsson til að fara yfir sína pólitísku baráttusögu, segja frá Fylkinguna og sósíalískri verkalýðsbaráttu í aðdraganda nýfrjálshyggjunnar.
Ástandið & kynþáttahyggjaarrow_forward
Við ræðum um ástandsstúlkur við þrjá sagnfræðinga: Báru Baldursdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur og Láru Magnúsardóttur. Og einn lögmann, Katrínu Theodórsdóttur. Er möguleiki á að þær stórkostlegu persónunjósnir geti endurtekið sig? Síðan kemur Hallfríður Þórarinsdóttir og segir okkur frá rasisma, kynþáttahyggju og þjóðrembu í samhengi við fjölda innflytjenda á Íslandi.
Vikuskammtur: Vika 46arrow_forward
Vikuskammtur í dag litast af náttúruhamförum í Grindavík. Við flytjum Rauða borðið í huganum á Olís í Grindavík, þar sem karlar koma á morgnanna, fá sér kaffi og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Það koma til okkar þrír fastagestir frá Olís í Grindavík: Sigurður Óli Þorleifsson, Páll Valur Björnsson og Ingibergur Þór Jónsson.