Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Vikuskammtur: Vika 44arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Ása Björk Ólafsdóttir prestur, Askur Hrafn Hannesson aðgerðarsinni, Benjamín Júlían starfsmaður ASÍ og Kristján Þór Sigurðsson mannfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem eru af stríðsmönnum og flóttafólki, basli og átökum, hræringum, átökum og deilum.
Fílinn í stofunni, efnahagsstefna Valhallar og ójöfnuður á Íslandiarrow_forward
Við höldum áfram að kortleggja Einreiðarklíkuna, kolkrabbann og bláu höndina. Nú er komið að Ólafi Jónssyni skipstjóra að segja okkur frá fílnum í stofunni. Við fáum síðan Guðmund Auðunsson hagfræðin til að bera saman efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins og breska Íhaldsflokksins. Í lokin kemur Guðmundur Jónsson sagnfræðingur og segir okkur frá ójöfnuðu á Íslandi, á átjándu öld.
Palestína, Kleppur, inngilding og Bláa höndinarrow_forward
Þeir koma að Rauða borðinu Yousef Ingi Tamimi og Qussay Odeh og lýsa sinni sýn á stríðið í Palestínu, fréttaflutning á Vesturlöndum og erfiðleika við að halda á lofti málstað Palestínu. Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir skrifaði skáldsögu um langömmu sína sem lögð var inn á Klepp og dó þar. Hún segir okkur frá langömmu sinni og hvers vegna hún vildi skrifa um hana. Fríða B. Jónsdóttir leikskólakennari segir okkur frá því hvernig kennarar geta aðlagast breyttum bekkjum, hópi nemenda sem eru af ólíkari uppruna en áður var. Og í lokin segir Gunnar Smári Egilsson frá sínum kynnum af Bláu höndinni.
Blá hönd, kennaraverkfall, klúður, morð og lestarræningiarrow_forward
Við höldum áfram að tala um Eimreiðina, Kolkrabbann og bláu höndina. Hallgrímur Helgason rithöfundur kynntist bláu höndinni og skrifaði um hana. Við ræðum kjarabaráttu kennara við Elna Katrín Jónsdóttir fyrrum formann Hins íslenska kennarafélags, Magnús Þór Jónsson formann Kennarasambandsins og Sigurð Pétursson sagnfræðing og handritshöfundar Endurgjöf, heimildarmynd um kennaraverkföllin undir lok síðustu aldar. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir okkur frá Microsoft-klúður ríkisins og Sigríður Dúa Goldsworthy frá morðunum í Dillonshúsi. Í lokin kemur Lóa Björk Björnsdóttir frá Lestinni á rás eitt að Rauða borðinu, reynir að taka viðtal á sama tíma og við tökum viðtal við hana.
SÞ, kolkrabbinn, samviskan borgaranna, Gazaarrow_forward
Atkvæði Íslands á allsherjarþingi hefur valdið pólitísku átökum og tilfinningalegum viðbrögðum. Við ræðum við Helen Ólafsdóttir, sjálfstætt starfandi öryggisfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum um atkvæðið og merkingu þess. Við skjótum síðan inn millikafla um ægivald bláu handarinnar á Íslandi, ræðum við Jóhann Hauksson sem hefur bæði persónulega reynslu af bláu höndinni og hefur rannsakað áhrif hennar í samfélaginu. Við ræðum síðan um stríðið í brjóstum okkar, hvaða áhrif Gaza hefur á okkur persónulega sem borgara. Gunnar Hersveinn heimspekingur, Magga Stína tónlistarkona og Ólafur Ólafsson myndlistarmaður ræða um áhrif stríðs á venjulegt fólk og um hvernig það getur brugðist við. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og ræðir um áhrif Gaza á heimspólitíkina og áhrif heimspólitíkurinnar á Gaza.
Helgi-spjall: Guðmundur Hrafnarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna frá ætt sinni og uppruna, hvað það merkir að vera Strandamaður, átökum við yfirvöld í æsku og á fullorðinsárum, leit sína af því hvernig maður hann vill verða og um þá baráttu sem hann hefur háð.
Vikuskammtur: Vika 43arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir sviðslistakona og handritshöfundur, Hrafn Jónsson pistlahöfundur og Jovana Pavlović mannfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem spanna sigur og samstöðu, átök og hörmungar, uppljóstranir og umdeild mál.
Svigrúm, stríð, vinnandi fátækt, nemandi og Napóleonarrow_forward
Við fáum þau Stefán Ólafsson sérfræðing Eflingar og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins um svigrúmið svokallaða, verðbólguna, vextina og kaupmáttinn. Síðan koma til að ræða hið hörmulega ástand á Gaza þau Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Þórir Jónsson Hraundal miðaldafræðingur og Viðar Þorsteinsson heimspekingur. Alexandra Ýr van Erven, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, segir okkur frá efnahagslegri stöðu stúdenta og fátækt meðal þeirra, og Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu segir okkur frá vinnandi fátækt, stöðu fólks sem er í fullri vinnu, jafnvel tveimur, en næst ekki að halda sig frá fátækt. Illugi Jökulsson kemur síðan og segir okkur frá Napóleon Bonaparte.
Kvennahreyfingin, íslenskan, Hamas og Hruniðarrow_forward
Við fáum Sonju Þorbergsdóttur formann BSRB og eina af þeim sem blésu til kvennaverkfallsins til að meta stöðuna daginn eftir. Hvað merkir hin mikla þátttaka? Íslenskan er í hættu, um það er ekki deilt. En hvað ber að gera? Íslenskufræðingarnir og prófessorarnir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Eiríkur Rögnvaldsson vilja bregðast við, en með ólíkum hætti. Þau deila um stefnuna í kvöld. Sverrir Agnarsson er margfróður um frelsis- og sjálfstæðisbaráttu múslima. Hann fræðir okkur um Hamas. Hvað kemur Hamas, úr hvaða jarðveg sprettur hreyfingin og hvað vill hún? Það er deilt um söguna af Hruninu, merkingu þess og hver eru fórnarlömbin og hverjir gerendur. Við ræðum þetta við Vilhjálmur Árnason prófessor, einn höfunda siðferðiskafla rannsóknarskýrslu Alþingis.
Hvers vegna kvennaverkfall? Einstæðar mæðurarrow_forward
Kvennaverkfall, hvers vegna og fyrir hver? Við tökum á móti hópi kvenna til að ræða um kvennabaráttuna á þessum tímamótum. Guðrún Ágútsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir, Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir og Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir koma fyrst og ræða við Oddný Eir. Ólöf Bjarki Antons, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Íris Björk Ágústsdóttir og Margrét Lilja Arnheiðardóttir ræða síðan við Maríu Pétursdóttur. Í lokin kemur síðan hópur af einstæðum mæðrum í stúdíó og á skjá til að ræða um hlutskipti sitt: Eva María Blöndal, Laufey Líndal Ólafsdóttir, Glódís Björt Eyrúnardóttir, Áslaug Saja Davíðsdóttir og Elín Agla Briem.