Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Helgi-spjall: Sigríður Gísladóttir

Helgi-spjall: Sigríður Gísladóttirarrow_forward

S04 E161 — 10/21/2023

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Sigríður Gísladóttir formaður Geðhjálpar frá því hvernig geðsjúkdómur móður hennar mótaði æsku hennar og hvernig hennar eigin sjúldómur tók við. Og hvernig hún gat unnið úr þessum áföllum öllum, risið upp til að hjálpa börnum í svipaðri stöðu.

Vikuskammtur: Vika 42

Vikuskammtur: Vika 42arrow_forward

S04 E160 — 10/20/2023

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður, Claudia Ashanie Wilson lögmaður, Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar og Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem sumar voru hryllilegar og uggvænlegar en aðrar léttvægari, jafnvel gleðilegar.

Evrópa, innflytjendur, Græn landamæri, narsissismi

Evrópa, innflytjendur, Græn landamæri, narsissismiarrow_forward

S04 E159 — 10/19/2023

Er Evrópa á dagskrá? Og hvaða Evrópa þá?  Valur Ingimundarson prófessor og Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum segja okkur frá stöðunni í Evrópu og hvert hún stefnir. Við höldum áfram að fjalla um fátækt og þá hópa sem eru útsettir fyrir henni. Nú er komið að innflytjendum. Karla Barralaga Ocón, Ian Mcdonald, Sherry Ruth og Natalie Scholtz segja okkur frá stöðu innflytjenda í samfélagi sem vill halda þeim niðri. Græn landamæri eftir Agnieszku Holland er magnað listaverk og stórkostleg samfélagsgreining á stöðu flóttafólks við landamæri Evrópu. Sema Erla Serdaroglu stofnandi Solaris og Jasmina Vajzović Crnac fóru á myndina og segja okkur frá henni og sinni upplifun. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson kemur að Rauða borðinu og fræðir okkur um sameiginlegan narsissisma.

Börn, innflytjendur, öryrkjar, saga og morðgáta

Börn, innflytjendur, öryrkjar, saga og morðgátaarrow_forward

S04 E158 — 10/18/2023

Við ræðum við Sæunni Kjartansdóttur sálgreini um þarfir ungra barna og hvort þeim sé mætt í því kerfi sem við höfum smíðað í kringum þau; fæðingarorlof, leikskóla o.s.frv. Mun framtíðin horfa gagnrýnum augum á kerfin okkar? Hafije Zogaj læknir segir frá baráttu sinni, sem er lík baráttu margra innflytjenda við að fá menntun sína viðurkennda á Íslandi. Atli Þór Þorvaldsson, fyrrverandi formaður kjarahóps ÖBÍ, segir okkur frá fátækt öryrkja, en við erum að skoða fátækt þeirra hópa sem útsettir eru fyrir fátækt. Orri Vésteinsson fornleifafræðingur mætir og ræðir skaðsemi lokunar safna, sem ekki skaða aðeins fræðafólk heldur lýðræðið í samfélaginu, sem nærist á frjálsu aðgengi að upplýsingum. Og í lokin segir Guðjón Jensson okkur frá gamalli morðgátu eða meinti morðgátu öllu heldur.

Bruni, hrun, fátækt og ADHD

Bruni, hrun, fátækt og ADHDarrow_forward

S04 E157 — 10/17/2023

Við ræðum við formann Leigjendasamtakanna, Guðmund Hrafn Arngrímsson, um atburði dagsins, leigjenda sem fórst í bruna í iðnaðarhverfi upp á höfða. En einnig um hvernig leigumarkaðurinn dregur fólk niður í fátækt og heldur því þar. Við ræðum um myndina Baráttan um Ísland, en ekki síður um baráttuna um söguna af Hruninu við þá Þórð Snæ Júlíusson blaðamann, Jón Gunnar Bernburg félagsfræðing og Árna Daníel Júlíusson sagnfræðing. Þá koma félagar í Pepp, félagi fólks í fátækt að Rauða borðinu, Laufey Líndal Ólafsdóttir, Ásta Þórdís Skalddal Guðjónsdóttir og Elísabet Hauksdóttir, og segja okkur frá fátækt og baráttu fátæks fólks í tilefni af degi fátæktar, sem er í dag. Í lokin segir Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD-samtakanna okkur frá rannsóknum á ADHD og meðferð við sjúkdóminum.

Pólland, fátæk, hryðjuverk og bresk stjórnmál

Pólland, fátæk, hryðjuverk og bresk stjórnmálarrow_forward

S04 E156 — 10/16/2023

Við ræðum við Jacek Godek stórþýðanda í Gdansk um pólsku kosningarnar og stjórnarskiptin sem virðast vera í nánd. Við ræðum við Kjartan Ólafsson félagsfræðing um fátækt, en hann er einn þeirra sem tók saman enn eina skýrsluna um fátækt fyrir stjórnvöld. Hver er byrði fátækar, ekki bara á þá einstaklinga og fjölskyldur sem verða fyrir henni, heldur samfélagið allt. Við heyrum í Helen Ólafsdóttur öryggissérfræðingi um Hamas, Palestínsku þjóðina og herinn í Ísrael. Hverir eru að fremja stríðsglæpi og með stuðningi hverra. Og við heyrum í Guðmundi Auðunssyni um stöðuna í breskum stjórnmálum, nú þegar flokkarnir hafa haldið sín flokksþing.

Helgi-spjall: Egill Sæbjörnsson

Helgi-spjall: Egill Sæbjörnssonarrow_forward

S04 E155 — 10/14/2023

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður og poppari frá lífi sínu, list, meðvirkni, samskiptum og samtíma en líka stöðu sinni í flæði tímans, þar sem hann er gestur á Hótel Jörð eins og við hin.

Vikuskammtur: Vika 41

Vikuskammtur: Vika 41arrow_forward

S04 E154 — 10/13/2023

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Borgar Magnason tónskáld, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðslistakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist stjórnarkreppu, hryðjuverkum, afsögn, átökum og ofbeldi.

Þjóðarmorð, innflytjendur, Græn landamæri og sósíalisminn í Svíþjóð

Þjóðarmorð, innflytjendur, Græn landamæri og sósíalisminn í Svíþjóðarrow_forward

S04 E153 — 10/12/2023

Við stöndum á þröskuldi þjóðarmorðs í Palestínu. Og svo virðist sem stjórnvöld á Vesturlöndum ætli að bæði að hvetja og styðja Ísraelsstjórn til þess. Við ræðum um þessa nöpru stöðu við Hjálmtý Heiðdal formann félagsins Ísland-Palestína og þá Qussay Odeh og Fahad Jabali, sem báðir eru íslenskir Palestínumenn. Darius Dilpsas, rafvirki og innflytjandi frá Litháen, segir okkur frá íslenskum vinnumarkaði í tilefni af nýrri skýrslu ASÍ um stórfelld vinnumarkaðsbrot gagnvart innflytjendum. Kvikmyndin Græn landamæri eftir Agnieszku Holland verður frumsýnd í Bíó Paradís um helgina. Valur Gunnarsson kemur til okkar og segir frá þessari mögnuðu mynd, bestu mynd sem Valur hefur séð um háa herrans tíð. Í lokin kemur Steingrímur Jónsson, bæjarfulltrúi Vinstriflokksins í Lundi, að Rauða borðinu og segir okkur frá stjórnmálum og sósíalisma í Svíþjóð.

Afsögn, íslenskt flóttafólk, vöggstofur, formaður ÖBÍ og heismmálin

Afsögn, íslenskt flóttafólk, vöggstofur, formaður ÖBÍ og heismmálinarrow_forward

S04 E152 — 10/11/2023

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður kemur að Rauða borðinu og spáir í stjórnmálaástandið eftir afsögn Bjarna Benediktssonar. Við ræðum við íslenska efnahagsflóttamenn á Spáni: Elínu Gunnarsdóttur, Guðnýju Matthíasdóttur, Guðjón Eiríksson, Karl Kristján Hafsteins Guðmundsson og Sigurbjörgu Pétursdóttur. Hvað voru þau að flýja og hvað fundu þau. Við ræðum við Selma Hafsteinsdóttir og Elísabet Hrund Salvarsdóttir, mæður ættleiddra barna, um vöggustofur og áhrif þeirra á börnin. Alma Ýr Ingólfsdóttir er nýr formaður ÖBÍ og segir okkur hver verkefnin fram undan eru. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor kemur til okkar og spáir í heimsmálin, nú þegar stríð er skollið á í Palestínu.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí