Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Bjarni, Palestína, kalt stríð og flóttafólkarrow_forward
Við fáum Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðing í fjármálum til að fjalla um afsögn Bjarna Benediktssonar út frá Íslandsbankasölunni og Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing til að meta afsögnina póilitískt. Magnús Bernharðsson prófessor reynir að meta stöðuna í Palestínu, sem er ill. Við ræðum síðan um kalda stríðið, sem margir segja að minni á nútímann. Haukur Ingvarsson bókmenntafræðingur og Rósa Magnúsdóttir sagnfræðingur segja frá menningarlegum afskipum stórveldanna á tímum kalda stríðsins. Í lokin koma Hjördís Kristinsdóttir kafteinn í Hjálpræðishernum, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir frá Geta-hjálparsamtökunum í Hafnarfjarðarkirkju og Helgi Guðnason prestur í Fíladelfíu og segja frá starfi sínu með flóttafólki frá Venesúela.
Palestína, kjaramál, Nóbel og loftlagsmálarrow_forward
Við ræðum við Falasteen Abu Libdeh um stríðið í Palestínu, fangabúðirnar á Gaza og hefndaraðgerðir Ísraelsstjórnar. Við ræðum við Ragnar Þór Ingólfsson formann VR um stöðuna í aðdraganda kjaraviðræðna. Við ræðum við Katrín Ólafsdóttir dósent um Claudia Goldin, sem fékk Nóbelsverðlaun í hagfræði í morgun og sem hefur rannsakað margt um stöðu kvenna á vinnumarkaði. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kemur síðan og dregur upp mynd af stöðu loftlagsmála í fimm myndum.
Helgi-spjall: Gísli Pálssonarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Gísli Pálsson mannfræðingur frá uppvexti sínum í Eyjum, uppreisn æskuáranna, rannsóknum sínum á mannfélaginu og ábyrgð fræðafólks í samfélaginu.
Vikuskammtur: Vika 40arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Erling Ingvason tannlæknir, Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Hlín Agnarsdóttir leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af skætingi, deilum, sorg og sárindum.
Miðbærinn, flóttafólk, jarðgöng, fræðimennska og sósíalismiarrow_forward
Við ræðum við Óðinn Jónsson blaðamann, Sigrún Tryggvadóttir formann íbúasamtaka miðborgarinnar og Björn Teitsson borgarfræðing um túrismann í miðbænum. Við ræðum við flóttakonu sem upprunalega er frá Sýrlandi en sem kom hingað frá Venesúela. Guðmundur Valur Guðmundsson og Bryndís Friðriksdóttur eru verkfræðingar hjá vegagerðinni og segja okkur frá örðugleikum og möguleikum til að leysa umferðarhnútana á höfuðborgarsvæðinu. Ólöf Anna Jóhannsdóttir fræðikona segir okkur frá frelsandi kennsla en líka kjarabaráttu sjálfstætt starfandi fræðafólks. Í lokin kemur Þorvaldur Þorvaldsson formaður Alþýðufylkingarinnar og ræðir sósíalisma.
Mótmæli, hagráð alþýðunnar, hægrið og leikskólarnirarrow_forward
Flóttafólk frá Venesúela tók sér þögla mótmælastöðu framan við Hallgrímskirkju í morgun. María og Oddný Eir fóru á staðinn og ræddu við fólkið sem stjórnvöld vilja vísa úr landi. Við fáum hagráð alþýðunnar til að spá í spilin á vaxtaákvörðunardegi: Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðing BSRB, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðing BHM og Róbert Farestveit hagfræðing Alþýðusambandsins. Eiríkur Bergmann prófessor fjallar um uppgang ysta hægrisins í Evrópu og reynir að greina hvað veldur. Er Evrópa að verða meira normal en áratugina á undan, voru eftirstríðsárin undantekning í sögunni en ekki normið. Í lokin ræðum við um leikskólamálin við Huldu Ásgeirsdóttur og Halldóru Guðmundsdóttur skólastjóra um leikskólalífið, ástríðuna og áskoranirnar.
Spilling, efnahagsstefna, Venesúela og Eimreiðarklíkanarrow_forward
Atli Þór Fanndal, framkvæmdastjóri Transparency International á Íslandi, kemur að Rauða borðinu og segir okkur frá fundi félagsins um samráð skipafélaganna, sem Samstöðin mun senda út. Stefán Ólafsson prófessor og sérfræðingur hjá Eflingu, kemur og reynir að ráða í efnahagsstefnu stjórnvalda. Hverjum þjóna stjórnvöld? Hinum fáu ríku? Eða fjöldanum. Við höldum áfram umfjöllun um flóttafólkið frá Venesúela. Gunnvör Rósa Eyvindardóttir stjórnmálafræðingur segir okkur hvers vegna það er kreppa í Venesúela, kreppan sem fólkið er að flýja. Og í lokin kemur Þorvaldur Logason heimspekingur og félagsfræðingur og segir okkur frá Eimreiðarhópnum sem náði völdum í Sjálfstæðisflokksins og í raun völdum yfir Íslandi, breytti landi eftir kenningum nýfrjálshyggjunnar. Aldrei hefur jafn fámennur hópur haft jafn mikil áhrif. Og vond, myndi einhver vilja bæta við.
Venesúela, Dögun, gervigreind og sósíalismiarrow_forward
Við ræðum risastóra mannúðarkrísu við prest Fíladelfíu, Helga Guðnason. Hvað gerist þegar ríkisvaldið ætlar að senda fleiri en fimmtán hundruð flóttamenn frá Venesúela til síns heima? Fólk sem hélt að það væri sérstaklega boðið hingað af íslenskum stjórnvöldum. Við rifjum upp stjórnmálaaflið Dögun með Dögunarfólkinu Helgu Þórðardóttur, Benedikt Sigurðarsyni, Gísla Tryggvasyni og Andreu Ólafsdóttur. Fyrir hvað stóð Dögun? Hafði hún áhrif og þá hver? Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands segir okkur frá ógn sem stafar að höfundum frá gervigreind og Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir við okkur um sósíalisma, út frá erindi Jeremy Corbyn.
Helgi-spjall: Þuríður Harpaarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, fráfarandi formaður ÖBÍ, okkur frá æsku sínu og lífi, alvarlegu slysi, fötlun, áfalli og baráttu.
Vikuskammtur: Vika 39arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Grímur Hákonarson leikstjóri, Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður Verkalýðsfélags Keflavíkur, Halla Gunnarsdóttir blaðakona og Magnús Guðmundsson blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af stéttaátökum, menningarátökum og alls kyns öðrum átökum.