Rauður raunveruleiki
Ungir sósíalistar ræða það sem máli skiptir.
Umsjón: Karl Héðinn Kristjánsson, Aníta Da Silva Bjarnadóttir og Oliver Axfjörð Sveinsson!

Þættir

Rauður raunveruleiki: Stefanía María Arnadóttir – Fer samkennd minnkandi?arrow_forward
Fer samkennd minnkandi? Stefanía María Arnadóttir skrifaði nýverið grein á Vísi þar sem hún fór yfir rannsókn sem sýna fram á að samkennd sé að minnka á meðal fólks. Við ræddum um niðurstöður þessarar rannsóknar og um hvað gæti mögulega verið að valda þessu, hvað sé til ráða.

Rauður raunveruleiki: Lenya Rúnarrow_forward
Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata kemur og situr undir spurningaflóði Kjartans Sveins Guðmundssonar um Íran, Írak og Kúrdistan, bankasöluna, hvernig stemningin sé á hinu himinháa Alþingi með meiru.

Rauður raunveruleiki: Katrín Baldursdóttir: Verkalýðsfélög, atvinnulífið og sósíalismiarrow_forward
Við spjöllum við Katrínu Baldursdóttir um hlutverk og stöðu verkalýðsfélaga, um atvinnulífið og sósíalisma.

Rauður Raunveruleiki – Hernaðarafskipti Bandaríkjanna eftir seinni heimstyrjöldarrow_forward
Í Rauðum Raunveruleika kvöldsins förum við yfir þau hernaðarlegu afskipti sem Bandaríkin hafa stundað frá seinni heimstyrjöld. Þetta verður ekki tæmandi listi en við förum yfir helstu atriði.

Rauður Raunveruleiki: Suður – Ameríka, frelsisbarátta og heimsvaldastefnaarrow_forward
Eyjólfur Eyvindarson og Kristbjörg Eva koma í Rauðan raunveruleika í kvöld. Við ætlum að ræða um pólitík í Suður Ameríku, heimsvaldastefnu og allt sem við því kemur. Eyjólfur hefur verið mikið í Suður Ameríku og þekkir ágætlega til. Saga Suður Ameríku getur sagt okkur margt um heiminn sem við lifum í.

Rauður Raunveruleiki – Ólafur Jónasson „Óli Ufsi“arrow_forward
Rauður Raunveruleiki í kvöld klukkan hálf tíu með Ólafi Jónssyni „Óla Ufsa“. Við ætlum að tala við hann um sjávarúvegskerfið, gengisfellingu krónunar, skipulagt svindl og fleira sem viðkemur þessu rotna kerfi eins og það er í dag. Hér er hafsjór af þekkingu og reynslu!

Rauður Raunveruleiki – Liðsauki, byltingarsinnar og umbreytingartímararrow_forward
Rauður Raunveruleiki snýr aftur í kvöld með Kjartani Sveini og Karli Héðni. Við spjöllum um samtímann, byltingar og hvað gæti verið framundan í þessum heimi stöðugra breytinga!

Rauður raunveruleiki – Pólitík og andleg heilsaarrow_forward
Halldór Auðar Svansson kemur í Rauðan Raunveruleika í kvöld. Halldór var borgarfulltrúi Pírata og við fáum að heyra um upplifun hans af því. Halldór hefur einnig starfað á sviði geðheilbrigðismála og er áhugamaður mikill um Zen, Alan Watts og fleira í þeim dúr. Farið verður um víðan völl og okkur hlakkar til samtalsins.

Rauður Raunveruleiki – Umhverfissálfræði: Borgarhönnun og vellíðanarrow_forward
Karl Héðinn og Trausti Breiðfjörð tala við Pál Jakob Líndal umhverfissálfræðing um skipulag borga og sálfræði umhverfisins. Það snertir á gríðarleg mörgu enda vitum við flest að umhverfið hefur gríðarleg áhrif á líðan okkar og samfélag.
Hvernig gerum við fallegar borgar sem ýta undir vellíðan? Við heyrum um hvernig þetta getur gengið mjög vel upp líkt og í Djúpavogi og hvernig þetta getur farið illa líkt og með Hafnartorgið.

Rauður Raunveruleiki – Sæþór Benjamín Randallsonarrow_forward
Sæþór Benjamín er sósíalisti sem er upprunalega frá Bandaríkjunum og hefur tekið þátt í barráttunni bæði hér og þar. Við fáum að heyra frá hans sjónarhorni hvað sósíalismi er, hvers vegna hann telur mikilvægt að taka þátt í verkalýðsbarráttu og allt sem við því kemur.