Finnur misnotar gyðingahatur til að koma höggi á heiðvirt fólk

„Við þurfum öll að mótmæla því að birtar séu rangar og ógeðslegar ásakanir í fjölmiðlum á hendur heiðvirðu fólki. Finnur Th. Eiríksson er yfirlýstur stuðningsmaður aðskilnaðarstefnu og þjóðernishreinsana Ísraels. Hann ruglar sjálfur stöðugt saman Gyðingum og Ísraelsríki. Ég hafna því að Finnur og aðrir verjendur nýlenduríkisins Ísraels hafi umboð til að fella dóma yfir öðrum um rasisma. Þeim væri nær að líta sér nær.“

Þetta skrifar Viðar Þorsteinsson, fræðslustjóri Eflingar, á Facebook og vísar í frétt DV um að Finnur Th. Eiríksson, meðlimur í Menningarfélagi Gyðinga, saki Sigurð Skúlason leikari um gyðingahatur. Á dögunum skrifaði Sigurður grein þar sem hann benti á að það væri sorglegt hvernig Gyðingar sem hefðu átt alla okkar samkennd og samúð í Helförinni hafi nú tekið sé hlutverk böðulsins.

Líkt og Viðar bendir á þá er mörgum misboðið að Finnur saki svo heiðvirðan mann og Sigurð Skúlason um gyðingahatur. Hjálmtýr Heiðdal, formaður Íslands Palestínu, er þar á meðal en hann skrifar í athugasemd hjá Viðari:

„Finnur skrifaði grein fyrir skömmu á visir.is þar sem hann sagði að Ísrael verði að láta hart mæta hörðu. Hann er herskár síonisti sem notar hvert tækifæri til þess að skella gyðingahatursstimpilinum á alla sem gagnrýna Ísrael og síonismann. Sigurður bendir á það sem blasir við: að fólk sem eru mörg afkomendur þeirra sem voru myrtir í Helförinni hagar sér nú sem böðlar. Síonistar sem reyna sífellt að nýta Helförina til framgangs sinna glæpa eru með því að smána minningu fórnarlamba nasista. Auðvitað eru ekki allir gyðingar síonistar og ekki fylgjandi helstefnu Ísraelsstjórnar – en það er ríkið sem heitir Gyðinglega lýðræðisríkið Ísrael. Þannig tengir ríkið sig sjálft við gyðinga með alla sína glæpi og ólýðræðislegu afstöðu. Skv. hugmyndum Finns þá er Ísrael þar með sekt um gyðingahatur!“

Aðrir telja að með þessu sé Finnur að gera sig algjörlega marklausan í umræðunni, líkt og Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, bendir á í sama þræði. „Burtséð frá öllu og öllu gera menn sig ómarktæka með tilhæfulausum ásökunum um hatur. Þetta er bara hlægilegt.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí