Reykjavíkurfréttir

Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar.

Umsjón: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Andrea Helgadóttir og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Þættir

Hin Reykjavík – Fátækt í Reykjavík

Hin Reykjavík – Fátækt í Reykjavíkarrow_forward

S03 E007 — 02/01/2022

Peppararnir Birna Kristín Sigurjónsdóttir og Hildur Oddsdóttir segja okkur frá starfi PEPP Ísland, grasrót fólks í fátækt. Þær segja okkur frá starfsemi samtakanna, valdeflingunni sem felst í því að koma fram með því að viðurkenna stöðu stöðu sína og tala um hana. Í þættinum fjöllum við um mikilvægi þess að hitta fólk sem þekkir það að búa við fátækt og hvernig það nýtist í baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun.

Hin Reykjavík – Aðstöðuleysi í grunnskólum

Hin Reykjavík – Aðstöðuleysi í grunnskólumarrow_forward

S03 E006 — 01/28/2022

Símon Vestarr, íslenskukennari ræðir við okkur um stöðu grunnskólana. Í þættinum skoðum við aðstöðuna sem kennarar og starfsfólk grunnskóla hefur til að taka á móti börnum, rýmið og móttökuáætlanir fyrir börn af erlendum uppruna.

Í þættinum skoðum við hvað skólarnir þurfa til að veita góða aðstöðu og hvaða þættir ógni því að börn geti átt góða grunnskólagöngu. Margt utan við skólann hefur áhrif á líðan nemanda og því skoðum við einnig aðra félagslega þætti sem spila þar inn í.

Hin Reykjavík – Ungt fólk, vinnuálag og húsnæði

Hin Reykjavík – Ungt fólk, vinnuálag og húsnæðiarrow_forward

S03 E005 — 01/25/2022

Katrín Tinna Eyþórsdóttir kemur í Hina Reykjavík og segir okkur frá vegferð sinni úr foreldrahúsum í eigið húsnæði. Við munum fjalla um störf hennar í næturvinnu á spítala, aukastarfi hennar, hark og aukavaktir og áhrif þess á lífið og líkamann. Aðstæður fólks eru misjafnar og í þætti dagsins skoðum við hvað ungt fólk þurfi að gera til að útvega sér húsnæði og hvað sé hægt að gera til að létta álagi af ungu vinnandi fólki í húsnæðisleit. Katrín endar á því að nefna: „ég er alltaf í kapphlaupi við sjálfa mig að eignast peninga svo ég geti séð fyrir sjálfri mér“, veruleiki sem margir tengja við.

Hin Reykjavík – Löng bið eftir húsnæði

Hin Reykjavík – Löng bið eftir húsnæðiarrow_forward

S03 E004 — 01/21/2022

Anita Da Silva Bjarnadóttir segir okkur frá reynslu sinni af húsnæðiskerfi borgarinnar þar sem hún beið í næstum tólf ár eftir félagslegri íbúð án þess að biðin skilaði árangri. Hún er nýlega komin aftur á þann biðlista og við ræðum óöryggi á leigumarkaði, hátt leiguverð og ferlið að baki þess að sækja um og viðhalda umsókn um félagslegt leiguhúsnæði.

Umsækjendur félagslegs leiguhúsnæðis þurfa að fara í gegnum ákveðið matsferli þar sem fjárhags- og félagslegar aðstæður eru metnar til stiga og þrátt fyrir að þörfin sé mikil, eru margir sem bíða til lengdar eftir húsnæði. Í þættinum förum við yfir þá stöðu sem blasir við fólki sem er fast á milli lágra tekna og okurleigu og ræðum það hvort að uppbygging húsnæðis síðustu ára hafi tekið mið af þörfum öryrkja, láglaunafólks og einstæðra foreldra.

Hin Reykjavík – Rasismi á Íslandi

Hin Reykjavík – Rasismi á Íslandiarrow_forward

S03 E003 — 01/18/2022

Anna Sonde, Kristín Reynisdóttir, Johanna Haile og Valgerður Reynisdóttir segja okkur frá síðunni sinni Antirasistarnir á Instagram þar sem fræðsla um rasisma á Íslandi fer fram. Í þættinum ræðum við um birtingarmyndir rasisma í íslensku samfélagi og viðbrögð skólakerfisins við kynþáttafordómum.

Í þættinum skoðum við hvernig hægt sé að berjast gegn rasisma og viðbrögðin sem Antirasistarnir hafa fengið. Finna má reikning þeirra á Instagram undir heitinu: antirasistarnir og þar inn á má einnig finna upplýsingar um fróðleg hlaðvörp þeirra.

Hin Reykjavík – Reynsluheimur dagforeldra

Hin Reykjavík – Reynsluheimur dagforeldraarrow_forward

S03 E002 — 01/14/2022

Sigurgyða Þrastardóttir, dagmamma segir okkur frá stöðu dagforeldra í Reykjavíkurborg, starfsskilyrðum og samskiptum við borgina. Dagforeldrum hefur fækkað á síðustu árum, börnum fjölgað og erfitt er að fá pláss fyrir börn í daggæslu. Á sama tíma bíða börn lengi eftir því að komast að í leikskóla og margir foreldrar eru í erfiðri stöðu. Dagforeldrar veita þjónustu sem foreldrar reiða sig á og er börnum mikilvæg. Í þættinum munum við spyrja út í húsnæðisaðstæður, aðbúnað og fjárframlög sem dagforeldrum stendur til boða.

Hin Reykjavík – Kreppa í leikskólum

Hin Reykjavík – Kreppa í leikskólumarrow_forward

S03 E001 — 01/11/2022

Signý Sigurðardóttir, starfskraftur á leikskóla, mætir í Hina Reykjavík og fræðir okkur um störf og starfsskilyrði mikilvægustu starfskrafta samfélagsins. Launakjör og starfsaðstæður leikskólastarfsfólks hafa mikið verið í umræðunni og ljóst er að margt þarf að breytast til að gera aðstæður góðar bæði fyrir starfsfólkið og börnin sem sækja skólana. Í þættinum munum við fara yfir þessi mál ásamt því að ræða aðstæður barna með mismunandi bakgrunn og hvernig þörfum þeirra er mætt.

Hin Reykjavík – Skipulagsmál og borgarrými

Hin Reykjavík – Skipulagsmál og borgarrýmiarrow_forward

S02 E017 — 12/17/2021

Skipulag nærumhverfisins getur gefið okkur jákvæða orku en getur einnig verið hamlandi allt eftir því hvernig það er byggt upp. Viðmælendur þáttarins eru Sigrún E. Unnsteinsdóttir og Laufey Líndal Ólafsdóttir og í þættinum verður farið yfir skipulagsmál út frá sjónarhóli gangandi vegfarenda og hverfisskipulags.

Sanna Magdalena Mörtudóttir ræðir við viðmælendur um græn svæði, göngustíga og gangstéttir, grenndargáma, kaffihús og skólagarða, svo fátt eitt sé nefnt.

Hin Reykjavík: Fátækt – fjárhagsaðstoð og áhrif á börn

Hin Reykjavík: Fátækt – fjárhagsaðstoð og áhrif á börnarrow_forward

S02 E016 — 12/10/2021

Í þættinum í dag ræðum við hvernig það er að lifa af upphæðum fjárhagsaðstoðar, fátækt og það sem þarf að neita sér um í slíkri stöðu. Elísabet Hauksdóttir ræðir við Sönnu Magdalenu Mörtudóttir.

Í dag mun Hin Reykjavík varpa ljósi á afleiðingum fátæktar, afleiðingum þess á börn og hversu erfitt er að vinna úr áföllum í þeirri stöðu. Við kynnumst einnig valdeflandi starfsemi Peppsins (grasrót fólks í fátækt) og fáum að heyra meira um verkefnið TINNU sem hefur það að markmiði að veita einstæðum foreldrum stuðning sem hafa fengið fjárhagsaðstoð eða eru með örorkulífeyri.

Hin Reykjavík – Starfar stjórnmálafólk fyrir alþýðuna?

Hin Reykjavík – Starfar stjórnmálafólk fyrir alþýðuna?arrow_forward

S02 E015 — 12/03/2021

Hvernig virka stjórnmál á Íslandi? Hvað felur nýr stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar í sér og hver verða áhrif hans á landsmenn? Sanna Magdalena Mörtudóttir og Kristbjörg Eva Andersen Ramos leitast við að skilja nútíma stjórnmál, hlutverk ráðherra og hvað núverandi stjórnarstaða þýðir fyrir okkur íbúanna.

Í þættinum verður leitast við að svara því hvernig almenningur getur komið sinni rödd á framfæri og stuðlað að breytingum.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí