Reykjavíkurfréttir
Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar.
Umsjón: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Andrea Helgadóttir og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Klippur
arrow_forward
Gegn hverju?
Kristjana Hrönn Ásbjörnsdóttir, faraldsfræðingur við Háskóla Íslands, ræðir við Oddnýju Eir um bólusetningar og helstu áskoranir og deilur þeim tengdar.
arrow_forward
Reykjavíkurfréttir – Bókasöfn – Miklu meira en bækur
Við kíkjum í hljóðvarpsstúdíó þar sem Dögg Sigmarsdóttir segir okkur frá lýðræðisverkefnum borgarbókasafnsins. Svo kemur Barbara Guðnadóttir safnstjóri og segir …
arrow_forward
Reykjavíkurfréttir – Þetta helst 30. janúar
Sanna og Adda ræða fréttir og mál vikunnar úr borginni.
arrow_forward
Reykjavíkurfréttir – Sund er allra meina bót
Til okkar koma þjóðfræðingarnir Katrín Snorradóttir og Valdimar Tryggvi Hafstein sem voru að gefa frá sér bókina Sund sem fjallar …
Þættir
Hin Reykjavík – Lágar upphæðir fjárhagsaðstoðararrow_forward
Sveitarfélögum er skylt að veita þeim sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, fjárhagsaðstoð til framfærslu. Grunnfjárhæðin er mjög lág og er hún 217.799 hjá Reykjavíkurborg og lækkar ef viðkomandi býr ekki í eigin húsnæði eða leigir húsnæði. Þar að auki er litið til tekna maka, þannig að réttur einstaklings til fjárhagsaðstoðar skerðist eða dettur út ef tekjur maka eru hærri en það sem hjón eða sambúðarfólk eiga rétt á hjá sveitarfélögunum. Í dag er miðað við svokallaðan hjónakvarða til hjóna/sambúðarfólks sem er 348.476 á mánuði.
Ása Lind Finnbogadóttir kemur til okkar í þáttinn en nýlega greindi hún frá því að maki hennar ætti ekki rétt á fjárhagsaðstoð vegna tekna hennar og erfitt væri að sjá fyrir sér hvernig dæmið ætti að ganga upp. Í þættinum ræðum við þetta og hvernig félagslegu kerfin sem eiga að grípa okkur, gera það ekki.
Hin Reykjavík – Andfemínískt skipulag borgaarrow_forward
Við ræðum skipulag borga og hvernig rými eru hönnuð og hvernig skipulag og aðrir þættir geta komið í veg fyrir að þau henti ákveðnum hópum. Sara Stef og Þóra Kristín Þórsdóttir koma í þáttinn og við ræðum m.a. snjóruðningar, sundlaugar og samgöngur.
Hin Reykjavík – R.E.C Arts Reykjavíkarrow_forward
Today’s show will be in English as we are joined with R.E.C Arts Reykjavík, a new theatrical and artistic creative team based in Reykjavík. Their aim is to bring diversity, visibility and representation of marginalized groups to the mainstream theater, dance and music scenes in Iceland. Chaiwe Sól, Eva Björk and Rebecca Hidalgo tell us how R.E.C Arts Reykjavík started out and how it’s going. We also discuss what needs to change in the Icelandic community to make sure that it truly is a place for all of us who reside here. You can find them on Facebook and Instagram under the name: R.E.C. Arts Reykjavík
Hin Reykjavík – Réttlæti fyrir börn vöggustofannaarrow_forward
Árni H. Kristjánsson og Viðar Eggertsson segja okkur frá málefnum vöggustofanna og afleiðingum þess á börn og fjölskyldur. Vöggustofur voru reknar á vegum borgarinnar á árunum 1949-1979 og voru hugsuð sem úrræði fyrir börn sem bjuggu við erfiðar félagslegar aðstæður, oftast var um að ræða börn alþýðufólks.
Inni á vöggustofunum var ekki hugað að þörfum barnanna og Árni og Viðar segja okkur frá félagslegum, andlegum og líkamlegum afleiðingum sem þetta hafði í för með sér. Við ræðum hvað þarf að gera varðandi rannsókn málsins og hvar málið er statt innan borgarkerfisins.
Hin Reykjavík – Samstaða, mótmæli og kraftur fjöldansarrow_forward
Við ræðum mikilvægi samstöðu, mótmæli og kraftinn sem á sér stað í því þegar margir einstaklingar koma saman til að senda skýr skilaboð. Karl Héðinn Kristjánsson, Rúnar Freyr Júlíusson og Trausti Breiðfjörð Magnússon ungir sósíalistar koma í Hina Reykjavík til þess að ræða mótmælin gegn ofsóknum á fjölmiðlafólki sem fóru fram síðastliðinn laugardag. Mótmælin voru haldin samtímis á Austurvelli í miðbæ Reykjavíkur og Ráðhústorginu á Akureyri. Við ræðum skipulagsferlið á bak við mótmæli og mikilvægi samstöðunnar.
Hin Reykjavík – Réttindabarátta leigjendaarrow_forward
Guðmundur Hrafn Arngrímsson leigjandi og stjórnarmeðlimur í Samtökum leigjenda á Íslandi segir okkur frá stöðu og kröfum leigjenda. Við förum yfir stöðuna á Íslandi og erlendis og skoðum árangursríkar baráttuaðferðir sem hafa virkað til að bæta stöðu leigjenda. Samtök leigjenda á Íslandi gáfu nýverið út viðmiðunarverð svo leigjendur og leigusalar geti glöggvað sig á raunvirði leigu. Í þættinum fjöllum við um viðbrögðin sem sú reiknivél hefur fengið og viðbrögðin við kröfum leigjenda í samfélaginu almennt.
Hin Reykjavík – Útrýmum fátæktarrow_forward
Hvernig útrýmum við fátækt? Ásta Dís Skjalddal samhæfingastjóri hjá PEPP Ísland grasrót fólks í fátækt og Laufey Líndal Ólafsdóttir, peppari ræða þessi mál í Hinni Reykjavík. Við fjöllum um þær aðgerðir sem þurfa að eiga sér stað til að útrýma fátækt, hvernig megi koma þeim í framkvæmd og hvernig eigi að mæta fátæku fólki.
Hin Reykjavík – Betri strætóarrow_forward
Hvernig virkar strætó fyrir borgarbúa, hvað þarf að laga og hvernig má ná því fram? Til þess að ræða þessi mál koma Björn Reynir Halldórsson, Claudia Overesch og Laufey Líndal Ólafsdóttir í Hina Reykjavík. Við ræðum þjónustu strætó, hvernig tekið er á móti ábendingum strætófarþega, aðgengi að strætó og strætóskýlum, öryggi í vögnum og margt fleira. Þá fjöllum við einnig um tengsl á milli hverfa og innan hverfa og útvistun á störfum innan strætó.
Hin Reykjavík – Verkalýðsbaráttaarrow_forward
Sæþór Benjamín Randalsson og Guðbjörg María Jósepsdóttir, félagar í Eflingu segja okkur frá mikilvægi þess að vera í stéttarfélagi. Í tilefni þess að stjórnarkosningar hjá Eflingu fara fram dagana 9.- 15. febrúar spyrjum við út í fyrstu skref þeirra í skipulagðri verkalýðsbaráttu, hvað hún snýst um og hvernig megi ná árangri. Sæþór og Guðbjörg bjóða sig fram til stjórnar Eflingar hjá Baráttulistanum og í þættinum spyrjum við út í áherslur listans og stefnumál.
Hin Reykjavík – Efnahagslegt óréttlæti í orkumálumarrow_forward
Laufey Ólafsdóttir segir okkur frá starfi EAPN (European Anti Poverty Network) og nýlegum umræðufundi um aðgengi að rafmagnsorku og húshitun. Vegna fátæktar hafa ekki allir það aðgengi. EAPN eru evrópsk samtök sem berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun og stóðu ásamt öðrum samtökum fyrir alþjóðlegum fundi um orkumál og aðgengi að þeim.
Í þættinum förum við yfir kröfur sem fram hafa komið varðandi aðgengi fólks að orku og setjum það í samhengi við málin í borginni.